Félag Flugumsjónarmanna logo

 

FÉLAG FLUGUMSJÓNARMANNA Á ÍSLANDI

Félag Flugumsjónarmanna.
Pósthólf 9095
129 Reykjavík
Sími 860-6880
E-mail Webmaster
 

  » Forsíða





 

15.06.2006

Samningar Icelandair og sænska ríkisins

Icelandair hefur náð samningum við sænska ríkið um að fljúga með starfsmenn þess á milli Svíþjóðar og Íslands annars vegar, og hins vegar á milli Svíþjóðar og Bandaríkjanna. Að sögn Sigmundar Halldórssonar, starfandi upplýsingafulltrúa Icelandair, er samningurinn stór áfangi fyrir félagið. Unnið hafi verið að honum í töluverðan tíma en hann verður undirritaður í Stokkhólmi á morgun. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur um verðmæti samningsins en að sögn Sigmundar ræðst það fyrst og fremst af því hve mikið starfsmenn sænska ríkisins muni fljúga á áðurnefndum flugleiðum. Samningurinn er til eins árs en að sögn Sigmundar er það venja hjá sænska ríkinu hvað varðar flugsamninga að gera ekki lengri samninga en það.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

---------------------------------------

09.06.2006

Super Puma þyrla leigð í haust

3Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra og Georg Kr. Lárusson forstjóri LHG undirrituðu í dag samning við forsvarsmenn fyrirtækisins Air Lift þá Bjarne Slapgard framkvæmdastjóra og Erlend Folstad markaðsstjóri um leigu á Super Puma þyrlu frá og með 1. október næstkomandi.

Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir, að Landhelgisgæslan hafi um árabil verið í talsverðum samskiptum við Air Lift og hafi þyrluflugmenn Landhelgisgæslunnar m.a. starfað á Svalbarða og á hamfarasvæðunum í Pakistan á vegum Air Lift í fríum sínum til að öðlast meiri reynslu. Samstarf Landhelgisgæslunnar og Air Lift hafi einnig falist í samnýtingu á varahlutum. Air Lift sé bæði með þyrlur af gerðinni Super Puma og Aerospatiale Dauphin líkt og Landhelgisgæslan.

Þyrlan er leigð til eins árs með möguleika á framlengingu. Samningurinn hljóðar upp á 14 milljónir króna á mánuði og 150 þúsund krónur fyrir hvern floginn flugtíma.

Áætlaður kostnaður við samninginn til eins árs er um 210 milljónir króna. Ríkiskaup hafði umsjón með samningsgerðinni.

Fyrirhugað er að ganga frá samningum um aðra þyrlu fyrir nk. mánaðamót. Þá kynnti Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra í ræðu sinni í tilefni undirritunarinnar að það er stefna ríkisstjórnarinnar að kaupa tvær sambærilegar þyrlur á næsta ári.

Auk þess er fyrirhugað að endurnýja flugvél Landhelgisgæslunnar og varðskip á næstunni eins og áður hefur verið kynnt

Þetta kom fram á mbl.is

-------------------------------------

09.06.2006

Ísland aðili að samningi um sameiginlegt flugsvæði í Evrópu

Ísland hefur gerst aðili að nýjum samningi um sameiginlegt flugsvæði í Evrópu. Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, undirritaði samninginn í dag í Lúxemborg, en hann er grundvallaður á gagnkvæmum aðgangi að mörkuðum aðildarlandanna.

Aðild að samningnum eiga Ísland, Noregur, Albanía, Bosnía Hersegóvína, Búlgaría, Króatía, Makedónía, Serbía og Svartfjallaland, Rúmenía, borgaraleg stjórnsýsla Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og aðildarlönd Evrópubandalagsins.

Með samningnum verður komið á flugsvæði sem byggist á frjálsum markaðsaðgangi, jöfnum samkeppnisskilyrðum og sameiginlegum reglum er lúta að flugöryggi, flugvernd, flugleiðsöguþjónustu, umhverfismálum og félagslegum þáttum. Samningurinn gildir jafnt um aðgang flugfélaga á Íslandi að flugmörkuðum á Evrópska efnahagssvæðinu sem og um reglur um flugvernd, flugöryggi og samkepnisreglur á sviði flugmála. Einnig tekur samningurinn til samskipta Íslands við aðildarríki hans í austanverðri Evrópu, þ.e. ríki sem ekki eru aðilar að EES samningnum og Ísland hefur ekki loftferðasamninga við. Samningurinn kemur til með að taka gildi í áföngum gagnvart þeim ríkjum, sem ekki hafa innleitt tilskipanir og reglugerðir Evrópusambandsins er lúta að flugsamgöngum.

Á heimasíðu samgönguráðuneytisins segir Sturla þennan samning geta skapað mikil tækifæri í flugmálum aðildarlandanna, en samningurinn tekur alls til 35 ríkja. Hann segist binda vonir við að samningurinn muni enn auka á möguleika íslenskra flugrekenda til útrásar og styrkja þar með rekstrargrundvöll flugfélaga og ferðaþjónustu á Íslandi.

Jacques Barrot, framkvæmdastjóri samgöngumála hjá Evrópubandalaginu, sagði undirritun samningsins vera sögulega stund sem ætti sér ekki fordæmi og myndi hafa í för með sér aukið flugöryggi.

Þetta kom fram á mbl.is

---------------------------------------

01.06.2006

Ljósmyndakeppni Flugnets.com

Sjá nánar hér Flugnet

Og nú er bara að rífa fram myndavélina og byrja :)

----------------------------------------

19.05.2006

Hagnaður British Airways eykst um 19,1%

Hagnaður breska flugfélagsins British Airways jókst um 19,1% á síðasta fjárhagsári. Nam hagnaðurinn 467 milljónum punda, tæpir 63 milljarðar íslenskra króna.

Segir í tilkynningu frá félaginu að þessi árangur hafi náðst þrátt fyrir hækkanir á eldsneyti á tímabilinu. Sala BA jókst um 9,6% og nam 8,5 milljörðum punda og rekstrarhagnaður jókst um 26,8% og nam 705 milljónum punda.

Þetta kom fram á viðskiptavef Morgunblaðsins í dag.

-----------------------------------------

19.05.2006

Air Atlanta leigir flugvélar fyrir 45 milljónir dala

Air Atlanta Icelandic hefur gengið frá samningi um leigu Boeing 747-200F fraktvélar til Saudi Arabian Airlines. Er þetta í fyrsta skipti sem Saudi Arabian Airlines leigir fraktvél af félaginu, en Saudi Arabian Airlines hefur leigt vélar af Air Atlanta Icelandic frá árinu 1993. Fraktvélin bætist í hóp tveggja Boeing 747-300 farþegavéla sem Saudi Arabian Airlines leigir af Air Atlanta Icelandic. Saudi Arabian Airlines leigir fraktvélina í 12 mánuði og farþegavélarnar í átta mánuði. Vélarnar verða afhentar í Jeddah í Saudi Arabíu þann 1. júní. Virði samningsins er um 45 milljónir Bandaríkjadala, að því er segir í tilkynningu.

Fraktvélin verður í flutningum frá Jeddah til Bandaríkjanna. Farþegavélarnar koma til með að fljúga til ýmissa staða í leiðakerfi Saudi Arabian Airlines, en í nóvember verða vélarnar notaðar í pílagrímaflug. Í haust verður tólfta skiptið sem Air Atlanta Icelandic flýgur pílagrímaflug fyrir Saudi Arabian Airlines.

Þetta kom fram á viðskiptavef Morgunblaðsins í dag.

---------------------------------------

21.04.2006

Enn aukning á flugi

24% aukning er á farþegafjölda sem fer um Egilsstaðaflugvöll ef bornar eru saman tölur nú og á sama tíma í fyrra. 38.153 farþegar fóru um völlinn fyrstu þrjá mánuði þessa árs og 585 flugvélar lentu á vellinum á tímabilinu. Er það um 20% aukning milli ára og jafnframt er mikil aukning á fragtflugi, eða um 28%. Alls fóru í fyrra tæplega 127 þúsund farþegar um Egilsstaðaflugvöll. Umferð um völlinn tvöfaldaðist milli áranna 2002 og 2005.

Þetta kom fram á mbl.is

---------------------------------------

20.04.2006

Gleðilegt sumar!

FFM óskar landsmönnum gleðilegs sumars um leið og við færum ykkur sérstakan sumarfögnuð, lagið Gleðilegt sumar sem fengið af heimasíðu Baggalúts.is

----------------------------------------

19.04.2006

6.000 farþegar með Flugfélagi Íslands

33Um sex þúsund farþegar ferðuðust með Flugfélagi Íslands um Páskana. Flugbókanir fara rólega af stað eftir Páskana en nokkur áhugi er fyrir ferðum til Grænlands.

Flugumferð gekk vel um Páskana utan á Föstudeginum langa þegar flug féll niður til Ísafjarðar vegna veðurs. Farþegar létu það þó ekki á sig fá og fóru keyrandi en flestir þeirra voru að fara koma fram á Rokkhátíð Alþýðunnar, Aldrei fór ég suður. Um sex þúsund farþegar ferðuðust með Flugfélagi Íslands um Páskana og er það svipaður fjöldi á undanfarin ár.

Inga Birna Ragnarsdóttir, sölu- og markaðsstjóri Flugfélags Íslands, segir að flugbókanir fari rólega af stað eftir Páskahegina en sumarið líti vel út. Hún segir að mikill áhugi sér fyrir ferðum til Grænlands meðal ferðamanna sem koma hingað en það sé einnig að færast í vöxt að Íslendingar fari í ferðir til Grænlands.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

-----------------------------------------

19.04.2006

Flugvöllurinn burt og göng um Öskjuhlíð

4Öskjuhlíðargöng, Sundabraut, gjaldfrjáls leikskóli og þjónustutrygging fyrir aldraða eru meðal kosningaloforða Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi kosningar. Þá verði flutningur flugvallarins undirbúinn á kjörtímabilinu.

Framvarðasveit Samfylkingarinnar kynnti helstu stefnumál sín í dag, en rúmur mánuður er í kosningar. Flokkurinn vill færa öll málefni aldraðra til sveitarfélaganna og bæta þjónustuna við eldri borgara og ef hún dregst óeðlilega,skapist réttur til greiðslu. Dagur B. Eggertsson borgastjóraefni flokksins segir að borgarar eigi rétt á þjónustu og ef hún sé ekki eins og hún á að vera, eigi að bæta borgurum það.

Þá verður unnið að því að byggja upp 6000 íbúðir, hlúa að ýmissi þjónustu og auka samkeppni. Þá standi öllum börnum til boða íþróttir og listnám, skólar verði sjálfstæðari og á þriggja ára tímabili verði leikskólar með öllu gjaldfrjálsir. Áhersla verður lögð á forvarnir og hverfaþjónustu og samgöngur verði bættar, til dæmis með göngum í gegnum Öskjuhlíð. Dagur segir ekki liggja fyrir hvað slík göng kosta, en þau séu nú í hönnun. Og einnig Sundabraut, sem erfiðlega hefur gengið að koma áfram og reyndar er nú talað um að fresta. Dagur segir það með ólíkindum að oddviti Sjálfstæðisflokksins hafi talað um frestun. Samfylkingin vilji þvert á móti fara með Sundabrautina alla leið og hann bendir á að stór hluti fjár til vegamála komi frá höfuðborginni og því eðlilegt að fé verði varið til vegamála þar.Þá á að einfalda þjónustu þannig að kort og farsímar nýtist betur og að félag verði stofnað með ríkinu um flutning flugvallarins og þróun Vatnsmýrinnar.

Þetta kom fram á fréttavef Vísir.is í dag.

---------------------------------------

10.04.2006

Áfengissýki vaxandi vandamál hjá flugfélögum

Sífellt fleiri flugmenn og flugþjónar og flugfreyjur í Danmörku eru svipt atvinnuleyfi vegna áfengissýki. Samkvæmt dagblaðinu Extra bladet þar í landi hefur vandinn farið stöðugt vaxandi en á meðan sjö manns voru á ári hverju að meðaltali sviptir starfsréttindum sínum vegna vandans á árunum 1992 til 2001, er talan nú 20 til 30 manns. Reynist áhafnarmeðlimur eiga við áfengisvanda að stríða er honum gert að fara í meðferð, vilji hann halda áfram störfum.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

---------------------------------------

31.03.2006

Flugþjónustan hyggst áfrýja úrskurði

IGS Ground servicesFlugþjónustan á Keflavíkurflugvelli sættir sig ekki við niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins, sem úrskurðaði að fyrirtækið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína við afgreiðslu farþegaflugvéla. Flugþjónustan hyggst áfrýja úrskurðinum.

Gunnar Olsen, framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar, segir fyrirtækið munu áfrýja úrskurði Samkeppnisstofnunar til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Fyrirtækið var dæmt til að greiða 80 miljónir króna í stjórnvaldssekt, fyrir að hafa beitt beinskeyttum og sértækum aðgerðum gegn fyrirtækinu Vallarvinum og þannig komið í veg fyrir viðskipti þess félags. Flugþjónustan, einnig nefnt ISG, er dótturfélag Icelandair Group, sem aftur er í eigu FL Group.

Flugþjónustan er sökuð um að hafa útilokað samkeppni með því að bjóða viðskiptavinum Vallarvina mun lægri kjör, en áður en Vallarvinir hófu starfssemi. Þýska flugfélagið LTU skipti við Vallarvini og var einn stærsti viðskiptavinur fyrirtækisins. Flugþjónustan náði samningum við LTU og færði það fyrirtæki viðskipti sín þangað. Telur Samkeppniseftirlitið að ekki hafi verið rekstrarlegar forsendur fyrir þeim samningi. Með öðrum orðum, að Flugþjónustan hafi boðið of lágt til þess eins að skemma fyrir Vallarvinum, án þess að hafa það sem frumforsendu að hagnast á samningnum. Í tilboðinu til LTU hafi falist beinskeytt og sértæk aðgerð gegn Vallarvinum, sem hafi verið til þess fallin að draga úr umsvifum þess félags og þar með samkeppni á mikilvægum markaði, sem hafi áhrif á stóran hluta ferðaþjónustu í landinu.

Í samtali við fréttastofu Útvarps í morgun, sagði Gunnar Olsen framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar þetta alrangt, samningurinn hafi verið gerður á þeim forsendum að félagið hagnaðist á honum.

Þetta kom fram á fréttavef RÚV í dag.

-----------------------------------------

30.03.2006

Sterling: 15 Flugmenn Maersk reknir

Sterling-flugfélagið ætlar að reka 15 flugmenn. Þetta er haft eftir Almari Erni Hilmarssyni í dönsku kaupahallartíðindunum Börsen. Flugmennirnir 15 störfuðu allir áður hjá Maersk-flugfélaginu. Deilur milli flugmanna virðast sífellt vera að harðna, og er svo komið að þær eru taldar ógna flugöryggi. Áður hafði verið ákveðið að flugmenn Sterling og Maersk flygju ekki sömu vélum.

Almar Örn telur að flugmennirnir 15 myndi harðan kjarna, sem sýni öðrum flugmönnum fyrirlitningu. Eftir að Sterling tók við Maersk Air í haust, hefur flugmönnum verið fækkað. Þar starfa nú 329 flugmenn. 198 eru frá Maersk, 131 frá Sterling.

Þetta kom fram á fréttavef RÚV í dag.

-------------------------------------------

06.03.2006

Nef farþegaþotu molbrotið eftir eldingu

9Flugvél Icelandair sem eldingu laust í skömmu eftir flugtak frá Keflavík í kvöld er með talsverða skemmd á nefi. Önnur vél fór með farþegana til New York á níunda tímanum í kvöld eftir að hafa fengið áfallahjálp hjá starfsmönnum Rauða krossins.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem voru tekin var skömmu eftir lendingu í Keflavík er veruleg skemmd á nefi vélarinnar. Lending tókst mjög vel og að sögn Karls Georgs Magnússonar, aðgerðarstjóra Rauðakrossins í Keflavík voru farþegarnir eitthundrað og fimmtíu flestir mjög rólegir eftir óhappið en svokallað áfallahjálparteymi frá félaginu talaði við farþegana í Leifsstöð. Karl Georg segir að áhöfnin með flugstjórann fremstan í flokki hafi sýnt mjög fagleg viðbrögð um borð eftir óhappið. Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta þótti þáttur flugstjórans mikilvægur en hann talaði nánast stöðugt við farþegana frá því óhappið varð og þar til vélinni var lent í Keflavík. Einhverjir farþegar sögðust þó hafa orðið varir við blossa og hvell þegar eldingunni laust í vélina.

Þá sagði einn farþeganna í samtali við NFS fréttastofuna í kvöld að einhverjir hefðu grátið. Allir héldu þeir þó för sinni áfram með annarri flugvél Icelandair á níunda tímanum í kvöld.

VF-mynd: Nef vélarinnar er mölbrotið.

Þetta kom fram á vef Víkurfrétta í dag.

----------------------------------------

18.02.2006

Landsflug krafið skýringa

6Heilbrigðisráðuneyti og bæjarstjórn Vestmannaeyjarbæjar hafa krafið Landsflug um skýringar á því hvers vegna sjúkraflugvél hafi ekki verið til staðar tvívegis á tveimur dögum þegar hennar var þörf. Framkvæmdastjóri Landsflugs segir félagið hafa staðið við skuldbindingar sínar og auk þess hafi ekki verið um bráðaútköll að ræða í umræddum tilvikum.

Á þriðjudag leið rúm klukkustund frá því sjúkraflug var pantað fyrir fárveikt tveggja ára gamalt barn í Vestmannaeyjum þar til flugvél lenti í Eyjum. Það var svo í gærmorgun sem vél var heldur ekki til staðar þegar útkall varð. Maður hafði beinbrotnað og gisti hinn slasaði á Heilbrigðisstofnuninni í Vestmannaeyjum yfir nótt, og þá var kallað eftir vél en engin slík var til staðar.

Bergur Elías Ágústsson, bæjarstjóri Vestmanneyjabæjar, segir ljóst að Eyjamenn sætti sig ekki við slíkt ástand. Skilyrt sé í samning um sjúkraflug að vél eigi alltaf að vera til taks í Eyjum. Bergur Elías segir Vestmannaeyjabæ og Heilbrigðisráðuneyti óska eftir skýringum frá Landsflugi.

Rúnar Fossádal Árnason, framkvæmdastjóri Landsflugs, segir að þeim fyrirspurnum verði svarað eftir helgi. Hann segir félagið hafa staðið við sínar skuldbindingar hvað varðar sjúkraflug til Eyja síðan það tók við því eftir áramót. Vél félagsins hafi verið í viðgerð í Reykjavík í þrjár nætur en komið aftur til Eyja í dag. Á meðan hafi verið sjúkravakt í Reykjavík. Ekki hafi verið hægt að senda aðra, stærri vél félagsins til Eyja þessa dag þar sem ekki sé hægt að hýsa þar sem stendur. Sótt hafi verið um lóð í Vestmannaeyjum fyrir flugskýli. Sú umsókn hafi ekki verið afgreidd enn.

Bergur Elías segir þá umsókn verða tekna fyrir eins hratt og vel og hægt verði.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

---------------------------------------

16.02.2006

Ekki frekari samvinna SAS við Icelandair hefji Sterling beina samkeppni

Jørgen Lindegaard, forstjóri norræna flugfélagsins SAS, segir að ef flugfélagið Sterling hefji beina samkeppni við SAS á einhverjum flugleiðum í Evrópu verði ekki um að ræða frekari samvinnu SAS og Icelandair. Bæði Sterling og Icelandair eru í eigu FL Group.

Þetta er haft eftir Lindegaard á fréttavef danska flugmálatímaritsins Take Off.

SAS sagði upp samstarfssamningi við Icelandair eftir að FL Group keypti Sterling, og tekur uppsögnin gildi eftir fjóra mánuði. SAS hefur boðað, að uppsagnarfresturinn verði notaður til að endurmeta stöðuna og vel komi til greina að semja á nýjan leik við Icelandair.

Þetta kom fram á mbl.is

---------------------------------------

15.02.2006

Tveir fluttir á sjúkrahús með flugvél eftir umferðarslys

Umferðaróhapp varð á Austurlandi á níunda tímanum í gærkvöldi. Ökumaður sem var að koma frá Akureyri missti stjórn á bifreið sinni við enda Urriðavatns skammt frá Egilsstöðum vegna mikillar hálku sem myndaðist á þjóðvegi 1. Ökumaðurinn skarst talsvert á höfði og voru hann og farþegi í bílnum fluttir með sjúkraflugi til Reykjavíkur.

Ekki var talið að um alvarleg meiðsl væri að ræða en talið öruggara að rannsaka betur við betri aðstæður en bjóðast á Egilsstöðum. Sjúkraflugvélin þurfti fyrst að koma frá Akureyri þar sem hún er staðsett og talsverður tími leið þar til sjúklingurinn var kominn í læknishendur, en starfsfólk frá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri var með í vélinni.

Þetta kom fram á mbl.is

----------------------------------------

15.02.2006

Engin Vél í sjúkraflug

VestmannaeyjarEngin flugvél var tilbúin fyrir sjúkraflug frá Vestmannaeyjum þegar á þurfti að halda í gærkvöld. Bíða þurfti vel á aðra klukkustund eftir flugvél sem kom úr Reykjavík til að sækja veikt barn.

Óskað var eftir sjúkraflugi klukkan 20.45 í gærkvöld en þá kom í ljós að engin vél var í Eyjum. Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið gerði samning í desember við fyrirtækið Landsflug og samkvæmt þeim samningi á vél til sjúkraflugs að vera ávallt til staðar í Eyjum. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu hafði þeirri vél verið flogið til Reykjavíkur í gær þar sem í ljós hafi komið minniháttar bilun og varahlutir ekki til hérlendis. Þess í stað hafi önnur vél verið send til Eyja og þar lenti hún klukkan 22, eða fimm stundarfjórðungum eftir útkall.

Gunnar K Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja, segist vonsvikinn yfir því að vél hafi ekki verið á staðnum. Hins vegar hafi viðbrögð Landsflugs verið góð og vélin hafi verið komin innan ásættanlegs tíma og flutningur gengið vel.
Gunnar segist munu gera heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu grein fyrir atvikinu en hann á einnig eftir að fá útskýringar frá Landsflugi.

Björn Þverdal, gæðastjóri hjá Landsflugi, segir þá vera að skoða atvikið, þeir hafi farið hálftíma framyfir umsaminn viðbragðstíma sem er ekki heppilegt. Hann segir að félagið hyggist fá nýja og heppilegri vél til sjúkraflugs á vordögum.

Þetta kom fram á fréttavef RÚV í dag.

----------------------------------------

15,02.2006

Farþegaþota lenti í Keflavík vegna gruns um vélarbilun

2Þota frá bandaríska flugfélaginu Delta lenti á Keflavíkurflugvelli á fimmta tímanum í dag vegna gruns um bilun í hreyfli. Fram kemur á fréttavef Víkurfrétta, að vélin, sem er af gerðinni Boeing 767, á leiðinni frá Frankfurt í Þýskalandi vestur um haf með 77 farþega og áhöfn um borð.

Viðvörunarljós, sem gaf til kynna að eldur væri í hægri hreyfli, kviknaði um kl. 15:20 og var því tekin sú ákvörðun að koma inn til lendingar. Við skoðun kom í ljós að ekkert var að hreyflinum.

 

 

 

Þetta kom fram á mbl.is

----------------------------------------

14.02.2006

Gamli Gullfaxi millilenti í Keflavík í dag

7Gamli Gullfaxi, fyrsta farþegaþota Íslendinga, lenti í Keflavík í dag til að taka eldsneyti. Flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 727, kom fyrst hingað til lands árið 1967 á vegum Flugfélags Íslands en fór úr eigu Íslendinga fór úr eigu Íslendinga árið 1984. Vélin á nú að baki um 50 þúsund flugtíma og vel yfir þrjátíu þúsund lendingar sem telst ansi mikið.

Jóhannes Snorrason var flugstjóri á Gullfaxa í fyrstu ferðinni hingað til lands. Snorri, bróðir Jóhannesar og fyrrverandi flugmaður og áhugaljósmyndari, var á Keflavíkurflugvelli í dag til að taka á móti flugvélinni en hann flaug henni mörgum sinnum á sínum tíma.

„Þetta var og er enn stórkostleg vél, var mikil bylting frá DC 6, Skymaster og slíkum vélum, sem éghafði flogið. Það er gaman að skoða hana nú rétt tæpum fjörtíu árum eftir að hún lenti á Íslandi“, sagði Snorri.

Það var ekki að sjá að aldurinn hefði nein áhrif á gamla Gullfaxa þegar vélin kom við í Keflavík í dag þótt hún sé líklega mest notaða flugvél úr íslenska flotanum. Eftir hálftíma viðkomu í Keflavík hélt vélin þaðan aftur í enn eitt verkefnið.

Myndband: Frétt um Gullfaxa sem unnin var fyrir Ísland í dag. (5 mínútur - ótextað) (.wmv)

Meira á mbl.is

-------------------------------------

13.02.2006

Á flugi í þrjá sólarhringa

5"Ég var virkilega heppinn að hafa komist hingað í dag, það gekk heilmikið á," sagði ævintýramaðurinn Steve Fossett á laugardaginn á flugvelli í Bournemouth á Englandi eftir að hafa flogið samfleytt í 76 klukkustundir, eða rúmlega þrjá sólarhringa.

Fossett var býsna ánægður með tilveruna, því með þessu flugi hafði hann sett nýtt met í langflugi. Honum tókst að fljúga hringinn í kringum jörðina, og gott betur, án þess að lenda og án þess að taka eldsneyti á leiðinni.

Samtals lagði hann að baki 42.467,5 kílómetra og sló þannig eldra metið frá 1986, sem var 40.210 kílómetrar.

Síðasti hluti ferðarinnar reyndist erfiðastur og Fossett neyddist til þess að lenda flugvél sinni örlítið fyrr en hann hafði ásett sér.

Það var auðjöfurinn Richard Branson sem fjármagnaði flugið og fagnaði hann ákaft þegar Fossett lenti.
Fossett lenti í margvíslegum erfiðleikum á leiðinni, missti til að mynda mikið eldsneyti strax við upphaf ferðarinnar í Bandaríkjunum. Einnig lenti hannn í miklum sviptivindum yfir Indlandi.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

----------------------------------

13.02.2006

Reykti um borð í flugvél

8Farþegi var handtekinn í Leifsstöð í gær eftir að hafa verið staðinn að því að reykja um borð í flugvél Flugleiða. Vélin var að koma frá Kaupmannahöfn og á miðri leið urðu flugfreyjur þess áskynja að reykjarlykt var á einu salerninu.

Venju samkvæmt var lögregla kvödd á staðinn og fór maðurinn frá borði í fylgd lögreglumanna. Maðurinn á yfir höfði sér fjársekt vegna athæfisins.

Að sögn lögreglunnar gerist það alltaf af og til að flugfarþegar séu gripnir við reykingar en slíkt er stranglega bannað.

Þetta kom fram á fréttavef Vísirs í dag.

-----------------------------------

13.02.2006

Flugvél hrapaði á heimili í Kaliforníu

Eins hreyfils flugvél, sem virðist hafa verið að framkvæma loftfimleikaatriði, hrapaði á hús í úthverfi bæjarins Roseville í Kaliforníu í gær. Að minnsta kosti tveir hafa látist og eldur hefur kviknað vegna slyssins að sögn lögreglu.

Stærðarinnar gat er á húsinu, sem er tveggja hæða, og eldur kviknaði í húsinu sem stendur á móti því. Hefur háaloft og bílskúr hússins skemmst mikið.

Búið er að staðfesta að tvennt hafi verið í flugvélinni. Þá er unglingsdrengs, sem býr í húsinu, saknað. Að sögn nágranna fóru foreldrar drengsins út úr bænum um helgina og því liggur ekki fyrir hvort að hann hafi verið heima þegar slysið varð.

Að sögn lögreglu eru engar líkur á því að nokkur maður hefði komist lifandi úr slysinu.

Umrædd flugvél var af gerðinni Glasair II árgerð 1996. Hún virtist hafa verið að framkvæma loftfimleikaatriði skömmu áður en að hún hrapaði til jarðar um hádegisbilið í gær að staðartíma.

Þetta kom fram á mbl.is

--------------------------------------

13.02.2006

Fyrsti farfuglinn kominn

1Fyrsti farfuglinn er kominn til landsins, en samkvæmt vefnum www.fuglar.is sást til súlu við Kópasker fyrir skemmstu. Súlan er þar um slóðir talin fyrsti farfuglinn og sést oftast fyrst í lok janúar eða fyrri hluta febrúar.

Að sögn Jóhanns Óla Hilmarssonar, fuglaáhugamanns, fer hver farfuglinn af öðrum að koma til landsins, en farfuglar hafa á síðustu árum sífellt komið fyrr. Segir hann ferð farfuglanna ráðast af því hvernig veðurfarið sé, bæði hér á landi og þar sem fuglarnir halda til yfir veturinn.

Næst segir Jóhann Óli von á sílamávinum og undir lok febrúarmánaðar megi einnig eiga von á skúmnum. Um miðjan mars má búast við álftinni og undir lok sama mánaðar koma síðan grágæsin og tjaldurinn. "Þannig að það er ljóst að styttast fer í vorið," segir Jóhann Óli og bendir á að vorboðinn ljúfi, lóan sjálf, sé væntanlegur í kringum síðustu vikuna í marsmánuði.

Alls eru, að sögn Jóhanns Óla, 75 varpfuglategundir hérlendis. Af þeim eru 26 tegundir algjörir farfuglar, 21 tegund er að mestu farfuglar en það þýðir að mestur hluti stofnsins heldur af landi brott að hausti þótt einstaka fugl verði eftir, 10 eru að nokkru farfuglar og 18 tegundir eru staðfuglar og dvelja hér á landi allan ársins hring.

Misjafnt hve langt farfuglarnir fara út í heim

Aðspurður segir Jóhann Óli nokkuð misjafnt hversu langt farfuglar haldi á haustin. Sumir fuglanna, eins og sílamávurinn, fara alla leið suður til Norður-Afríku en aðrar tegundir, t.d. súlan, virðast aðeins fara rétt út á haf og halda þar til.

"Hins vegar er ómögulegt að segja nákvæmlega til um hvar margar tegundanna halda sig, því það er hreinlega ekki vitað. Það verður ekki hægt að rekja ferðir þeirra til fullnustu fyrr en hægt verður að hengja á þær gervihnattasenda," segir Jóhann Óli.

Þetta kom fram á mbl.is

-----------------------------------------

11.02.2006

Magnús Kristinsson kaupir Bílaleigu Flugleiða

Magnús Kristinsson, aðaleigandi Toyota á Íslandi, hefur fest kaup á Bílaleigu Flugleiða ehf. (Hertz á Íslandi) en seljandi er FL Group hf. Kaupverð er trúnaðarmál milli kaupanda og seljanda. Hertz á Íslandi er önnur tveggja stærstu bílaleiga landsins með tæplega þriðjungs markaðshlutdeild.

FL Group tilkynnti í gær, þegar skýrt var frá því að Icelandair Group yrði skráð í Kauphöll Íslands, að Bílaleiga Flugleiða og Kynnisferðir, dótturfélag FL Group, hefðu verið sett í sölumeðferð.

Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. var ráðgjafi kaupanda og Íslandsbanki hf. ráðgjafi seljanda.

Þetta kom fram á mbl.is

----------------------------------------

11.02.2006

Síða FFM varð fyrir árás Hakkara

Þetta gerðist einhvern tíman í morgun eða nótt. Eins og þið sáuð var þetta ljót síða sem kom upp, með yfirlýsingu um að muslimar væru ekki terroristar..............dæmi hver sem vill um það, en í mínum augum var þetta ekkert annað en skemmdarverk og terrorismi að skemma heimasíðuna okkar. En Hjalti hjá Ljósmiðlun brást skjótt við og lagaði heimasíðuna.

Vefstjóri

---------------------------------------

14.01.2006

Fjögur sjúkraflug í dag

Mikið hefur verið að gera í sjúkraflugi í dag eða fjögur flug. Þar af voru þrjú þeirra flug sem varð að sinna strax. Flugfélag Íslands sinnti öllum flugunum og var nægur flugfloti til staðar.

Fyrsta flugið var kl. 11 til Kúlúsúk á Grænlandi. Farið var með Fokker að sækja mikið slasaðan sjúkling og hann fluttur til Reykjavíkur. Því flugi var lokið um kl. 16:40.

Næst var flogið til Sauðárkróks að sækja mikið veikan sjúkling sem var að koma frá Siglufirði. Ekki var hægt að bíða eftir að flugbrautin á Siglufirði yrði rudd og því var keyrt með sjúkling til Sauðárkróks og flogið með hann til Akureyrar. Flogið var með Twin Otter.

Stuttu eftir að lent var á Akureyri fór vélin aftur á loft í þriðja flugið. Þá var flogið til Keflavíkur til að sækja sjúkling sem var að koma, með Icelandair, úr aðgerð erlendis. Flogið var með sjúkling til Akureyrar.

Á meðan á því flugi stóð fór fjórða flugið í gang og stendur það enn. Í því flugi var flogið með hinni Twin Otter vél Flugfélags Íslands til Egilsstaða og alvarlega veikur sjúklingur fluttur til Reykjavíkur, að því er segir í tilkynningu frá Slökkviliði Akureyrar.

Þetta kom fram á fréttavef Morgunblaðsins í dag.

-------------------------------------










This site is © Copyright FFM 2004-2005, All Rights Reserved